Dáleiðslumeðferðir

En hvernig virkar þetta?

Bókun > viðtalstími

Eftir að þú bókar tíma í dáleiðslu mun dáleiðandinn hafa samband við þig til að ræða þá meðferð sem óskar eftir og fá nauðsynlegar upplýsingar. Misjafnt er hvort viðtalið sé gert í gegnum í síma eða á staðnum. Eftir viðtalið mun dáleiðandinn staðfesta tímabókunina.

Dáleiðsla

Almenn dáleiðslumeðferð tekur 60-90 mínútur og tekur á ákveðnum atriðum til að bæta almenna líðan og efla ákveðna þætti í fari fólks. Þessi meðferð er til dæmis nýtt til þess að vinna á svefnörðugleikum, hætta að reykja, þyngdarstjórnun og til að efla einbeitni fólks í námi eða íþróttum.

Hugræn endurforritun

Ein öflugasta dáleiðslumeðferð sem í boði er og hvert skipti tekur 2-3 klukkustundir. Hugræn endurforritun byggir á nokkrum dáleiðslumeðferðum (Ego State Therapy, Subliminal Therapy og Trauma Therapy) sem og rannsóknum í taugafræði. Þetta er svo samþætt í eina gríðarlega öfluga heild.

Logi Júlíusson

Klínískur dáleiðandi - Dip.CH

Certified Clinical Hypnotherapist

Ég býð upp á alhliða dáleiðslumeðferðir fyrir einstaklinga sem vilja bæta andlega líðan, vinna úr erfiðum upplifunum og/eða ná fram jákvæðum breytingum í lífi sínu af ýmsu tagi.

Ég sérhæfi mig meðal annars í meðferðum við kvíða, áföllum og kynferðislegum vandamálum og/eða bætingu á kynlífi og nánd.

Kvíði er eðlileg viðbrögð við streitu, óvissu eða erfiðum aðstæðum, en hjá sumum getur hann farið að hafa áhrif á daglegt líf, sjálfstraust og vellíðan. Áföll geta einnig haft djúp áhrif á taugakerfið og tilfinningalíf, sérstaklega ef það er ekki unnið úr þeim á réttan hátt.

Kynferðisleg vandamál eru algengari en margir halda og geta haft veruleg áhrif á sjálfsmynd, sambönd og lífsgæði. Dáleiðsla er mjög áhrifarík þegar vandinn tengist sálrænum þáttum t.d. eins og streitu, kvíða, álagi, neikvæðri sjálfsmynd eða fyrri reynslu. Algeng viðfangsefni hjá körlum eru til dæmis risvandi og ótímabært sáðlát, en hjá konum minnkuð kynhvöt, sársauki við samfarir eða erfiðleikar með fullnægingu. Einnig er hægt að nota dáleiðslu til að efla kynferðislegt sjálfstraust, nánd og ánægju.

Dáleiðsla er öflug aðferð sem hjálpar huganum að komast í djúpa slökun þar sem auðveldara er að vinna með undirvitundina og rót vandans. 

Logi Júl.

Sendu fyrirspurn

    Bókaðu tíma

    Meðlimur í fagfélögum:

    Nokkur dæmi um það sem dáleiðsla lagar eða bætir

    Það er nánast ómögulegt að telja allt upp sem dáleiðsla getur lagað en hér er það allra algengasta þar sem dáleiðsla getur bjargað málunum.
    Hvað segja meðferðarþegar?

    Umsagnir viðskiptavina

    Unnið var með sjálfsvirðingu:

    Tíminn var frábær og ég er búin að finna fyrir mjög miklum breytingum síðan. Ég finn töluvert minna fyrir minnimáttarkennd og finn sterka sjálfsábyrgðartilfinningu. Það er einhvernvegin miklu auðveldara fyrir mig að framkvæma það sem er gott fyrir mig eins og að fara í ræktina og taka vel á því, borða hollt og fara fyrr að sofa.

     – sagði dáleiðsluþegi, eftir tíma hjá:

    Sigurbjörg Kristjánsdóttir

    Sigurbjörg Kristjánsdóttir

    Klínískur dáleiðandi
    Unnið var með erfiðar djúpar tilfinningar:

    Ég er gjörsamleg laus við alla streitu og ótta í því verkefni sem ég er að vinna í núna. Ég er eiginlega bara dálítið hissa á því hvað ég er slök og óttalaus. Nánast fullkominn árangur varðandi ótta minn við að hafa ekki stjórn á djúpum tilfinningum mínum við ákveðnar aðstæður.

     – sagði dáleiðsluþegi, eftir tíma hjá:

    Sigurbjörg Kristjánsdóttir

    Sigurbjörg Kristjánsdóttir

    Klínískur dáleiðandi

    For me, this was a wonderful experience. I thought there would be no solution for countless issues in our marriage, but Dr. Brooks has so far proven me and my husband wrong.

    Jack Weinstein

    Jack Weinstein

    Photographer
    My books

    My Personal Store

    Areas of Expertise

    The superior achievements of my study
    It’s my goal to create a comfortable, safe environment where we’ll work together to achieve your goals. Therapy can be among the most challenging and rewarding experiences of your life – I consider it a privilege to join my clients.
    • Neuropsychology Assessment Center
    • Services for the Emotionally Distressed
    • Trauma Resolution Integration

    Almenn fyrirspurn

    Við höfum samband eins fljótt og auðið er.

      Our site uses cookies. Learn more about our use of cookies: cookie policy